Haukar í Horni er stuðnings- og styrktarfélag Hauka og bæði einstaklingar og fyrirtæki geta verið virkir meðlimir. Þetta er virkilega sterkur félagsskapur og er ómetanlegur í rekstri meistaraflokka félagsins. Hér sameinumst við öll undir einum hatti og gerum Hauka að sameinuðu félagi okkar allra.
Það eru ýmis fríðindi sem fylgja því að vera meðlimur en fyrst og fremst náttúrulega ánægjan af því að vera virkur meðlimur og félagi í Haukum.
Haukar í horni – Gullfélagi
Verð: 3.550 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári. Hjón: 5.900 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári
Haukar í horni – Silfurfélagi
Verð 2.750 krónur á mánuði á ári. Hjón: 4.400 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári