Styrkja kaup á búnaði
Körfuknattleiksdeild Hauka stendur fyrir söfnun fyrir búnaði til að senda út körfuboltaleiki á netinu.
Á þessum síðustu og verstu Covid tímum höfum við þurft að glíma við þá staðreynd að leikjum og æfingum meistaraflokka var frestað þegar mótið var rétt hafið. Þegar þetta er ritað standa vonir til þess að mót geti hafist á ný þann 13. nóvember en ljóst er að ólíklegt verður að áhorfendur verða leyfðir á leikjum, og þá bara í mjög takmörkuðum fjölda. Stöð 2 mun sýna frá fleiri leikjum en áður sem er gott fyrir okkar samstarfsaðila enda sjást auglýsingar þá oftar í sjónvarpi sem telst kostur. Það verða þó ekki allir leikir sýndir beint í sjónvarpi og til að koma til móts við eftirspurn þá stefnum við á að bjóða upp á góðar útsendingar frá öllum meistaraflokksleikjum hið minnsta og jafnvel fikrum við okkur í yngri flokka eftir getu.Hluti af þeim búnaði sem þarf er nú þegar til en þó er nauðsynlegt að uppfæra búnaðinn og að bæta við. Til stendur að bæta við myndavél ásamt myndvinnsluboxi og þrífæti. Þessi búnaður er því miður ekki ódýr og deildin á erfitt með að fjármagna þennan búnað eins og staðan er þessa dagana. Við viljum því leita til allra okkar stuðnings- og samstarfsaðila um að leggja smá í púkkið ef það er möguleiki til þess.
Heildarkostnaður þess búnaðar sem áætlað er að kaupa er u.þ.b. 460.000 kr. Fyrir ykkur sem eru forvitin um búnaðinn sjálfan er listi yfir hann neðst á síðunni.
Til þess að leggja þessu verkefni lið er hægt að leggja inn á reikning deildarinnar og það væri frábært að setja "Söfnun fyrir búnaði" sem skýringu þannig að peningurinn verði örugglega nýttur á réttan hátt.
Reikningur KKD Hauka: 545-26-6241 Kt. 670281-0519
Einnig er hægt að smella á greiðsluhnappa hér fyrir neðan og leggja verkefninu lið með kortagreiðslu.
| 2500 kr. | 5000 kr. | 10.000 kr. | 25.000 kr. |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Hér er hægt að sjá hvernig gengur að safna fyrir búnaðinum - við uppfærum reglulega :)
365.000 af 460.000
Búnaður sem stendur til að kaupa
Blackmagic Design ATEM Mini Pro HDMI Live Stream Switcher
Canon XA15 Compact Full HD - SDI, HDMI, Composite
Magnus VT-4000 Tripod System with Fluid Head

